Á Uppskeruhátíð Fáks voru ræktendur verðlaunaðir fyrir árangur hrossaræktar þeirra á árinu 2023. Verðlaunuð voru hæst dæmdu hross hvers aldursflokks ræktuð af félagsmönnum í Fáki.

Ræktunarbikar Fáks hlaut efsti hesturinn ræktaður og í eigu félagsmanns Fáks. Ræktunarbikar Fáks 2023 hlutu Gunnar Arnarson og Kristbjörg Eyvindsdóttir fyrir Hljóm frá Auðsholtshjáleigu en hann hlaut í aðaleinkunn 8.65.

Óskum við ræktendum til hamingju með árangurinn.

4 vetra hryssur

Kvika frá Hafnshóli

Faðir: Kveikur frá Stangarlæk
Móðir: Skíma frá Kvistum

Fyrir sköpulag hlaut Kvika 8.22 og hæfileika 8.05 en hún er sýnd án skeiðs. Þar af hlaut hún 9 fyrir: Háls, greitt og hægt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið.

Aðaleinkunn 8.11

Ræktendur: Árni Björn Pálsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir

Lind frá Efsta-Seli

Faðir: Rauðskeggur frá Kjarnholtum
Móðir: Lady frá Neðra-Seli

Fyrir sköpulag hlaut Lind 8.22 og fyrir hæfileika 8,05. Jafnvíg og efnileg fimmgangshryssa.

Aðaleinkunn 8.11

Ræktandi: Daníel Jónsson

5 vetra hryssur – Ragnheiður frá Torfabæ

Faðir: Blysfari frá Fremra-Hálsi
Móðir: Gerpla frá Torfabæ

Fyrir sköpulag hlaut Ragnheiður 8.05 og fyrir hæfileika 8.50. Þar af 9 fyrir skeið og samstarfsvilja.

Aðaleinkunn 8.34

Ræktandi og eigandi: Kristján Andrésson

6 vetra hryssur – Díva frá Kvíarhóli

Faðir: Skýr frá Skálakoti
Móðir: Birta frá Mið-fossum

Fyrir sköpulag hlaut Díva 8.61 og hæfileika 8.50. Hlaut hún meðal annars 10 fyrir prúðleika og 9 fyrir bak og lend, tölt og hægt tölt, brokk, hægt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið.

Aðaleinkunn 8.54

Ræktandi: Ingólfur Jónsson

7 vetra hryssur og eldri – Nóta frá Flugumýri

Faðir: Blysfari frá Fremra-Hálsi
Móðir: Smella frá Flugumýri

Smella hlaut fyrir sköpulag 8.63 og hæfileika 8.62. Jafnvíg og öflug alhliða hryssa með 9 fyrir háls, bak og lend, samræmi, brokk og samstarfsvilja.

Aðaleinkunn 8.63

Ræktandi: Páll Bjarki Pálsson

4 vetra stóðhestar – Hinrik frá Hásæti

Faðir: Herkúles frá Ragnheiðarstöðum
Móðir: Maístjarna frá Forsæti

Fyrir sköpulag hlaut Hinrik 8.29 og hæfileika 7.75, sýndur án skeiðs. Hinrik hlaut meðal annars 9 fyrir höfuð og tölt.

Aðaleinkunn 7.94

Ræktandi: Fjölnir Þorgeirsson

5 vetra stóðhestar – Hljómur frá Auðsholtshjáleigu

Faðir: Organisti frá Horni
Móðir: Tíbrá frá Auðsholtshjáleigu

Fyrir sköpulag hlaut hljómur 8.63 og hæfileika 8.66. Hljómur er alhliða hestur með jafnar og góðar gangtegundir. Hann hlaut 9 fyrir bak og lend, samræmi, tölt, brokk, greitt stökk og samstarfsvilja.

Aðaleinkunn 8.65
Ræktandi: Gunnar Arnarson & Kristbjörg Eyvindsdóttir

6 vetra stóðhestar – Guttormur frá Dallandi

Faðir: Spuni frá Vesturkoti
Móðir: Gróska frá Dallandi

Fyrir sköpulag hlaut Guttormur 8.44 og hæfileika 8.70. Guttormur er alhliða hestur með jafnar og góðar gangtegundir. Hann hlaut meðal annars 9 fyrir hófa, tölt, brokk, skeið og samstarfsvilja.

Aðaleinkunn 8.61

Ræktandi: Gunnar Dungal & Þórdís Sigurðardóttir

7 vetra stóðhestar og eldri – Hylur frá Flagbjarnarholti

Faðir: Herkúles frá Ragnheiðarstöðum
Móðir: Rás frá Ragnheiðarstöðum

Hylur hefur hlotið hæstu sköpulagseinkun sem gefin hefur verið eða 9,09 og í hæfileika 8.45 en hann er sýndur án skeiðs. Hann hefur hlotið 9,5 fyrir samræmi, fótagerð, prúðleika, brokk, greitt stökk og samstarfsvilja og 9 fyrir háls, bak, hófa, tölt og fegurð í reið.

Aðaleinkunn 8.68

Ræktandi: Arnar Guðmundsson

Ræktunarbikar Fáks 2023 – Hljómur frá Auðsholtshjáleigu