Margir félagsmenn í Fáki eiga eftir að greiða félagsgjöldin fyrir 2020. Án félagsgjalda er erfitt fyrir Fák að halda úti þjónustu sem allir nota árið um kring eins og viðhaldi reiðvega, snjómokstri, gámadögum og margt fleira sem við tökum sem sjálfsögðum hlut í okkar hestamennsku.

Við biðlum því til félagsmanna að taka vel í þessa bón og greiða félagsgjöldin í heimabankanum.

Ef einhver er ekki með aðgang að heimabanka þá vinsamlega hafið samband við Einar framkvæmdastjóra á skrifstofu Fáks varðandi aðrar greiðsluaðferðir. Sími á skrifstofu er 567-2166.

Árgjaldið fyrir fullorðna er 15.500 og 5.000 fyrir 18 til 21 árs.

Hvað gerir hestamannafélagið Fákur fyrir þig?

  • Félagið hefur byggt upp myndarlegt reiðvegakerfi í samstarfi við Reykjavíkurborg.
  • Félagið heldur úti öflugri hagsmunagæslu fyrir félagsmenn og hesthúsaeigendur á svæðinu.
  • Félagið heldur úti öflugu félagsstarfi fyrir alla aldurshópa félagsmanna. Sem dæmi má nefna að:
    • Félagið rekur félagshesthús fyrir börn og unglinga sem eru að taka sín fyrstu skref í hestamennsku.
    • Félagið heldur úti öflugu æskulýðsstarfi.
    • Félagið skipuleggur námskeiðahald og fræðslustarf.
    • Félagið skipuleggur sameiginlega reiðtúra félagsmanna.
    • Félagið skipuleggur viðburði fyrir heldri Fáksfélaga.
    • Félagið skipuleggur fjölmarga viðburði, litla og stóra, fyrir félagsmenn og má þar m.a. nefna Herra- og Kvennakvöld Fáks, Þorrablót og miðnæturreið í Gjárétt.
  • Félagið þjónustar og viðheldur þeim mannvirkjum sem félagið hefur byggt upp, t.a.m. TM-Reiðhöllina, keppnisvelli í Almannadal og Víðidal, félagsheimili Fáks og félagshesthúsið.
  • Félagið mokar reiðvegi á athafnasvæði Fáks til að gera félagsmönnum það léttara að stunda útreiðar yfir snjóþyngstu mánuðina.

Forsendurnar fyrir öllu því sem upp er talið hér að ofan, án þess að listinn sé tæmandi, er að þeir sem stunda hestamennsku sína á félagssvæði Fáks séu félagar og greiði félagsgjöld sín til félagsins.