Æskulýðsnefnd Fáks hefur fengið Fredricu Fagerlund til að vera með námskeið í Gæðingalist í Fáki fyrir börn, unglinga og ungmenni.

Námskeiðið byrjar á fyrirlestri þar sem farið verður yfir reglur og áherslur í keppni.  Þá eru 6 verklegir 45min einkatímar sem kenndir verða í desember, janúar og febrúar.  Kennsla fer fram í Lýsis höllinni (Reiðhöllin í Víðidal) ásamt sýnikennslu í reiðhöllinni í Mosfellsbæ.

Fyrirlestur miðvikudaginn 6.desember 2023 í Guðmundarstofu.

Verkleg kennsla

  • 9-10.desember 2023 (2x45min)
  • 6-7.janúar 2024 (2x45min)
  • 3-4 febrúar 2024 (2x45min)

Sýnikennsla 31. Janúar 2024 í reiðhöllinni í Mosfellsbæ.

Verð 57.500kr

 

Hægt er að nýta frístundarstyrkinn.

Skráning fer fram á Sportabler