Þorvarður Helgason

Þorvarður Helgason

Miðnæturreið Fáksara verður farin laugardagskvöldið 1. júní og riðið upp í Heiðmörk á vit sumarævintýranna. Lagt verður af stað frá Reiðhöllinni kl. 21:00 og riðið upp í Gjárétt sem er ca. 45 – 60 mín reiðtúr, áð þar, étið, drukkið, sungið og svo riðið aftur heim fyrir miðnætti. Í Gjáréttinni bíða okkar grillaðar pylsur og svalur gulur vökvi sem byrjar á b… enda ferðin meira hugsuð fyrir fullorðna. Allt frítt í boði Fáks fyrir Fáksfélaga (aðrir naga strá 🙂 Veðurspáin er mjög góð og vonumst til að sjá sem flesta í skemmtilegum reiðtúr í Reykvískri sumarblíðu og rómantískri sólsetursbirtu júnímánaðar.

Ath. vantar einhvern til að sjá um grillið og bjórinn (sjálfboðaliðar tali við Þorra í síma 660-4612).
Útreiðarnefndin.