Miðvikudaginn 19.  apríl er hinn árlegi hreinsunardagur Fáksmanna.  Hreinsunardagurinn hefst kl. 17:00 og lýkur með grilli í Guðmundarstofu frá kl. 18:30 – 19:00.

Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir að hjálpa til við að halda svæðinu okkar hreinu og snyrtilegu. Ruslapoka er hægt að nálgast í anddyri reiðhallarinnar.

Tekið er við rusli sem safnast sunnan við reiðhöllina.

Þeir sem eiga bagga eða rúllur á rúllusvæði eru sérstaklega beðnir um að mæta þangað og taka til hendinni við að týna plast úr trjám og runnum.

Ekki er tekið við rusli úr hesthúsum.

Margar hendur vinna létt verk!

Þá biðjum við þá sem geyma hestakerrur sínar við hesthús um að koma þeim niður á kerrusvæði.