Á laugardaginn kemur þann 13. febrúar verður gríðarskemmtilegt grímutöltmót í TM-Reiðhöllinni.:)  Mótið hefst kl 13:30 og er skráning í anddyri TM-Reiðhallarinnar frá kl. 12:30-13:00. Engin skráningagjöld 🙂

Flokkar eru eftirfarandi, og riðið í þessari röð og úrslit eftir forkeppni í hverjum flokki fyrir sig (nema í pollaflokk en þar er verðlaunað strax (allir fá verðlaun). Teymdir pollar, ríðandi pollar, börn, unglingar, opinn flokkur minna vanir og opinn flokkur meira vanir.

Fyrirkomulag: Þrír saman inn á í einu og ríðið er hægt tölt og fegurðartölt (pollar ríða bara frjálst tölt).

Einnig verða veitt verðlaun fyrir búninga í eftirtöldum flokkum börn/unglingar (5 verðlaun) og opnir flokkar (5 verðlaun).

Allir að mæta og hafa gaman saman í léttri og skemmtilegri keppni og eftir keppnina verður boðið upp á grillaðar pylsur í boði Fáks í TM-Reiðhöllinni. 🙂