Vetrarleikum er frestað.

Vegna mikils snjóþunga og slæmrar veðurspár á morgun laugardag er vetrarleikum frestað um óákveðinn tíma. 

————————————————————

Vetrarleikar Fáks verða haldnir laugardaginn 19. febrúar klukkan 12:00. Byrjað verður inni í reiðhöll á polla- og barnaflokkum.

Skráning fer fram á þessari slóð að neðan.
Skráning á fyrstu vetrarleika Fáks 2022

Skráningu lýkur 12:00 á hádegi á föstudaginn 18. febrúar og verða ráslistar birtir seinnipartinn. 

Skráningargjald er 2500 kr, frítt fyrir polla og börn.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að pollar og börn keppa inni í reiðhöllinni. Börn ríða upp á vinstri hönd hægt tölt og síðan frjálsa ferð. Úrslit verða riðin strax á eftir.

Aðrir flokkar keppa úti á Hvammsvelli ef aðstæður leyfa.

Þar er sýnt hægt ein ferð fram og til baka hægt tölt, ein ferð fram og til baka frjáls ferð. Úrslit á eftir hverjum flokki og verðlaunaafhending.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Pollaflokkur (teymdir)
  • Pollaflokkur (ríðandi)
  • Barnaflokkur minna vanir
  • Barnaflokkur meira vanir
  • Unglingaflokkur minna vanir
  • Unglingaflokkur meira vanir
  • Ungmennaflokkur
  • Konur II
  • Karlar II
  • Konur 1
  • Karlar 1

Fákur áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í hverjum þeirra.