Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst mánudaginn 5. september nk. með bóklegum tíma í Guðmunarstofu. Verklegir tímar hefjast svo 6. september og kemur hver þátttakandi með sitt trippi. Farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.

 

  • Atferli hestsins
  • Leiðtogahlutverk
  • Fortamning á trippi
  • Undirbúningur fyrir frumtamningu
  • Frumtamning

 

Bóklegir tímar: 1

Verklegir tímar: 11

Tímar: Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga í fjórar vikur.

Verð: 40.000.-

Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í TM-Reiðhöllinni og í hesthúsinu hjá Róberti þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Skráning á fakur@fakur.is og gott að gera það sem fyrst til að tryggja pláss og tíma en í tölvupóstinum þarf að koma fram; Nafn, kennitala, ósk um tímsetningu (kl. 17-18-19-20-21) og gsm númer. Robbi 897-5580.

Námskeiðið er öllum opið 🙂