Jóhanna Margrét Snorradóttir landsliðskona ætlar að vera með 2x40min einkatíma helgina 2-3 mars í Lýsishöllinni.
Verð 29.000kr

Jóhanna Margrét útskrifaðist sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum árið 2018. Í dag starfar við þjálfun og reiðkennslu á Árbakka hjá Hestvit.

Jóhanna hefur átt góðu gengi að fagna á keppnisvellinum og stendur í fremstu röð afreksknapa. Hún er heimsmeistari í tölti, samanlögðum fjórgangsgreinum og þrefaldur Íslandsmeistari.
Hún var einnig valin íþróttaknapi ársins 2023 og íþróttamaður Mána.

Skráning fer fram á Sportabler