Íslandsmót ungmenna & fullorðinna hefst á félagssvæði Fáks í Reykjavík fimmtudaginn 25. júlí kl. 12:00. Knapafundur verður á FB viðburði mótsins og ef eitthvað brennur á fólki þá er hægt að hafa samband við mótsstjóra og/eða yfirdómara í síma eða með fyrirspurn á skraning@fakur.is. Athugið einnig að keppendum er velkomið að koma við í fótaskoðun og láta fara yfir búnað, leiki vafi á lögmæti hans í keppni.

Keppendur í gæðingalist athugið: í báðum flokkum fellur sú grein niður vegna lítillar þáttöku.

Nokkrir punktar til að hafa í huga:

  • Ráslistar eru tilbúnir, hægt að skoða í HorseDay smáforritinu.
  • Hægt er að afskrá þar til einni klst áður en grein hefst. Þá er ráslisti þeirrar greinar endanlegur.
  • Endanleg dagskrá er hér meðfylgjandi og í HorseDay.
  • Mótið er WR. Breytingar FEIF 2024 er að finna hér sem og aðrar reglur um keppni á vef LH. Þátttakendur bera ábyrgð á því að kynna sér reglur um þá keppni sem þeir skrá sig til þátttöku í.

Tengiliðir mótsins:

  • Þórir Örn Grétarsson, framkvæmdastjóri – 897 7654
  • Siggi Ævars, mótsstjóri – 898 3031
  • Sigríður Pjetursdóttir, yfirdómari – 899 7792

Alendis.tv mun sýna beint frá mótinu, þannig að allir hafa möguleika á að horfa á.

Víðidalurinn mun taka vel á móti keppendum, aðstandendum og öðrum gestum og skartar nú þegar sínu fegursta.

Mótsstjórn óskar keppendum góðs gengis og drengilegrar keppni.

 

Dagskrá

Fimmtudagur 25. júlí 2024
12:00 Fjórgangur V1 ungmennaflokkur
14:15 Hlé
14:35 Fjórgangur V1 meistaraflokkur
16:35 Kaffihlé
17:00 Fimmgangur F1 ungmennaflokkur
19:00 Kvöldmatarhlé
19:50 Skeið 250m, svo 150m – 1. og 2. sprettur
22:10 Dagskrárlok
Föstudagur 26. júlí 2024
09:00 Fimmgangur F1 meistaraflokkur 1-15
10:25 Hlé
10:35 Fimmgangur F1 meistaraflokkur 16-31
12:05 Hádegishlé
12:40 Tölt T2 ungmennaflokkur
14:25 Kaffihlé
14:40 Tölt T2 meistaraflokkur
16:30 Hlé
16:45 Tölt T1 ungmennaflokkur 1-16
18:00 Kvöldmatarhlé
18:40 Tölt T1 ungmennaflokkur 17-33
19:55 Hlé
20:05 Tölt T1 meistaraflokkur
22:15 Dagskrárlok
Laugardagur 27. júlí 2024
10:00 Gæðingaskeið PP1 ungmennaflokkur
11:00 Hlé
11:15 Gæðingaskeið PP1 meistaraflokkur
12:25 Hádegishlé
13:15 B-úrslit fjórgangur V1 ungmennaflokkur
13:45 B-úrslit fjórgangur V1 meistaraflokkur
14:15 B-úrslit fimmgangur F1 ungmennaflokkur
14:45 B-úrslit fimmgangur F1 meistaraflokkur
15:15 Kaffihlé
15:45 B-úrslit tölt T2 ungmennaflokkur
16:15 B-úrslit tölt T2 meistaraflokkur
16:45 B-úrslit tölt T1 ungmennaflokkur
17:15 B-úrslit tölt T1 meistaraflokkur
17:45 Kvöldmatarhlé
18:45 Skeið 250m, svo 150m – 3. og 4. sprettur
21:05 Dagskrárlok
Sunnudagur 28. júlí 2024
10:00 Flugskeið 100m P2 ungmennaflokkur
10:30 Flugskeið 100m P2 meistaraflokkur
11:30 Hádegishlé
12:30 A-úrslit fjórgangur V1 ungmennaflokkur
12:55 A-úrslit fjórgangur V1 meistaraflokkur
13:20 A-úrslit fimmgangur F1 ungmennaflokkur
13:55 A-úrslit fimmgangur F1 meistaraflokkur
14:30 Kaffihlé
14:50 A-úrslit tölt T2 ungmennaflokkur
15:15 A-úrslit tölt T2 meistaraflokkur
15:40 A-úrslit tölt T1 ungmennaflokkur
16:10 A-úrslit tölt T1 meistaraflokkur
16:40 Dagskrárlok