Hér má sjá dagskrá gæðingamóts Spretts og Fáks sem fer fram föstudaginn 30.maí og laugardaginn 31.maí á Samskipavellinum í Spretti.
Ráslistar verða tilbúnir í hádeginu á morgun, fimmtudag, sem finna má í HorseDay.
Skráning í pollaflokk er ókeypis og fer fram á tölvupósti hjá motaskraning@sprettur.is fram til miðnættis föstudagsins 30.maí. Boðið verður upp á bæði pollar teymdir sem og pollar ríða sjálfir. Vinsamlegast gefið upp fullt nafn knapa, hvorn flokkinn er skráð í ásamt nafni hests, lit og aldur.
Vekjum athygli á því að:
* Gæðingatölts flokkar hjá yngri flokkum hafa verið sameinaðir í gæðingatölt 17 ára og yngri.
* Gæðingatöltsflokkar 1 og 2 hafa verið sameinaðir í gæðingatölt fullorðinna.
* A flokkur gæðingaflokkur 2 hefur verið sameinaður við A flokk gæðingaflokk 1.
* Allar skeiðgreinar falla niður vegna dræmrar þátttöku, skráningagjöld verða endurgreidd.
Ef knapi vill ekki að skráning sín færist á milli flokka er hægt að hafa samband við motaskraning@sprettur.is
Léttar veitingar verða til sölu meðan á mótinu stendur.
Föstudagur kl.16:30
Forkeppni gæðingatölt 17 ára og yngri
Gæðingatölt fullorðnir
B-flokkur opinn
Ungmennaflokkur
Barnaflokkur
Matarhlé 25mín
ca. kl.19:30
Unglingaflokkur
B-flokkur áhugamanna
A-flokkur
Laugardagur kl.10:00
Úrslit gæðingatölt 17 ára og yngri
Úrslit gæðingatölt eldri
Ungmennaflokkur
B-flokkur opinn
Barnaflokkur
Ca. kl.12:00 Matarhlé 30mín
12:30
Pollaflokkur
B-flokkur áhugamanna
Unglingaflokkur
A-flokkur