Dagur íslenska hestsins um heim allan er á sunnudagurinn (1. maí) og í því tilefni bjóða Fáksmenn gestum og gangandi að koma við í hesthúsunum, sjá, snerta og jafnvel fara á bak á hestum og þiggja léttar veitingar. Tekið verður á móti fólki frá kl. 13:00-15:00 í félagshúsi Fáks (fyrir ofan félagsheimili Fáks) og þar verður hægt að fá teymt undir börnum og kynnast hestunum og hesthúslífinu.

Allir velkomnir enda gaman að kíkja við í stærsta hesthúsahverfi í borg í Evrópu.