Við óskum eftir aðstoð félagsmanna til að gefa börnum og unglingum sem ekki hafa aðgang að hestum tækifæri til að stunda hestamennsku í Fáki.

Hvernig get ég aðstoðað?

Með því að leigja eða lána trausta reiðhesta (ásamt reiðtygjum) í reiðkennslu 1 – 2 x í viku!

Nemendurnir eru meðlimir í Fákar og fjör – hestaíþróttaklúbbi, hafa brennandi áhuga á hestamennsku og hafa mörg hver sótt fjölda námskeiða. Þau verða undir leiðsögn menntaðra reiðkennara (Sifjar og Karenar) og felst kennslan m.a. í jákvæðri uppbyggingu hests og knapa.

Hvenær?

Börn 12 ára og eldri byrja í kennslu 11. janúar. Kennslan er á laugardögum en það bætist stundum við einn virkur dagur.
Börn 11 ára og yngri byrja 2. febrúar og fer kennslan fram á sunnudögum.

Þetta samstarfsverkefni stuðlar að nýliðun í hestamennsku, en það getur reynst áhugasömum krökkum sem ekki hafa bakland í hestamennsku erfitt að stunda íþróttina.
Fyrirkomulagið getur verið hentugt fyrir hestaeigendur sem vantar létta en uppbyggilega þjálfun á hestana sína eða vilja hreinlega leggja hendur á plóg til að aðstoða börnin.

Sif og Karen verða tengiliðir í þessu verkefni. Áhugasamir fylla út skráningarform hér að neðan með ákveðnum upplýsingum.  

https://forms.gle/tKwr5pqf9VM7doFR8