Almannadalsmótið er sennilega stærsta og skemmtilegasta hestamannamótið sem fer fram í um 200 m hæð yfir sjó. Það verður haldið á laugardaginn nk. 17. maí og hvetjum við alla Fáksfélaga til að koma og keppa á léttu og skemmtilegu móti, eða ríða við og fá sér grillaða pylsu og hitta skemmtilega og “almenni”lega hestamenn í Almannadal.

Mótið er töltmót og hefst kl. 14:00. Keppt er í eftirfarandi greinum.

Pollaflokki

16 ára og yngri – minna vanir

16 ára og yngri – meira vanir

Byrjendaflokkur (allir aldurshópar)

17 ára og eldri – meira vanir

17 ára og eldri – minna vanir

100 m skeið

Skráning á staðnum í hringgerðinu  (frá kl. 12:00 – 13:30) og er ekkert skráningargjald.

Létt og skemmtilegt mót sem endar með grillveislu að hætti Almannadalsbúa í hringgerði.

Allir að ríða við, pylsa sig upp og hvetja knapana.