Almannadalsmótið verður haldið laugardaginn 17. maí klukkan 13:00.
Keppt verður tölti og skeiði. Töltkeppnin verður með T7 fyrirkomulagi; fyrst er riðið hægt tölt og svo snúið við og sýnd frjáls ferð á tölti.
Keppt er í eftirfarandi greinum:
- Pollaflokkur
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Minna vanir 18 ára og eldri
- Meira vanir 18 ára og eldri
- 100 m skeið.
Mótið er létt og skemmtilegt og hvetjum við alla áhugasama að mæta og taka þátt. Að loknu móti verða grillaðar pylsur fyrir þátttakendur og gesti.
Skráning verður auglýst stuttu fyrir mót. Hægt verður að skrá sig á formi á heimasíðu eða á staðnum í Almannadal til klukkan 12:00.
Ekkert skráningargjald er á mótið.