Anton Páll reiðkennari verður með einkatíma í Lýsishöllinni þriðjudagana 18. febrúar og 25.febrúar frá kl 09-16.45.

Verð fyrir fullorðna er 35.400 kr
Verð fyrir unglinga og ungmenni 27.600kr
(unglingar og ungmenni greiða fullt verð fyrir námskeiðið en hægt er að biðja um endurgreiðslu á reiðhöllinni með því að senda  á netfangið einar@fakur.is

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.

Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross. Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.

Skráning fer fram á Sportabler