Þá er komið að Vetrarleikum II en þeir verða haldnir Laugardaginn 14.mars. Skráning mun fara fram uppí Reiðhöll frá kl 11-12 og mun mótanefnd bjóða uppá kaffi og veitingar. Mótið mun svo hefjast kl 13 á Pollaflokk. Flokkar sem boðið er uppá eru eftirfarandi:
- Pollar Teymdir (1-9 ára) (inni)
- Pollar Ríðandi (1-9 ára) (inni)
- Börn – Minna vanir (10-13 ára á árinu) (inni)
- Börn – Meira vanir (10-13 ára á árinu) (inni)
- Unglingar (14-17 ára á árinu)(úti)
- Ungmenni (18-21 ára á árinu)(úti)
- 3. Flokkur – Fullorðnir inní reiðhöll fyrir fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í keppni og/eða keppa lítið (inni)
- 2.Flokkur – Minna keppnisvanir (úti)
- 1.Flokkur – Meira keppnisvanir (úti)
Við munum klára Pollaflokka, Barnaflokka og 3.Flokk áður en haldið verður út á kynbótavöll ef að veður, vindar og völlur leyfa.
Ef að fólk kemst ekki fyrir mót uppí reiðhöll að skrá er hér skráningarform sem hægt er að skrá í -> HÉR
Við minnum svo á facebook eventinn en þar munum við birta allar helstu upplýsingar um mótið eins og ráslista, hverjir fara í úrslit o.s.frv. hægt er að nálgast eventinn HÉR
Við mælum með að fólk setji sig í going svo það fái allar helstu fréttir af mótinu! Hlökkum til að sjá alla næsta Laugardag hvort sem það er að keppa eða hvetja sitt fólk áfram!
