Uppskeruhátið barna og unglinga verður haldin nk. mánudag 11. nóv. og er það vegna þess að þá ætlar margfaldur heimsmeistarinn í tölti að halda léttan og fróðlegan fyrirlestur um þjálfun keppnishesta. Við ætlum einnig að heiðra knapa, spjalla saman um vetrarstarfið en byrjun á því að borða saman góðan mat. Allir velkomnir, börn, unglingar og foreldrar) en láta þarf vita með mætingu á netfangið fakur@fakur.is vegna matarinnkaupa.