Umgjörð þjálfunar og keppni
Starf félagsins, í æskulýðsstarfi þess, tekur mið af stefnuyfirlýsingu ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga. Stefnt skal að því að allt stjórnarfólk og starfsmenn félagsins, þar með taldir þjálfarar og leiðbeinendur að störfum á vegum félagsins, kynni sér og þekki stefnuyfirlýsingu ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga.
Félagið stendur einnig fyrir umfangsmiklu námskeiða- og mótahaldi fyrir fullorðna iðkendur hestaíþrótta.
1.1 Andi stefnunnar
Hestaíþróttir eru almenningsíþrótt og að stórum hluta er hún stunduð sem fjölskylduíþrótt. Ástundun hennar hefur reynst mikilvæg forvörn fyrir æskulýð og er góð samvera fjölskyldna. Langflestir hestamenn stunda hestamennsku sér til ánægju og yndisauka og fjölmargir hestamenn fara aldrei inn á keppnisvöll. Hestamennskan er hins vegar einnig stunduð sem keppnisíþrótt og sinnir félagið mikilvægri starfsemi í þjálfun og uppbyggingu iðkenda sem afreksfólks í íþróttinni.
Félagið hefur það að leiðarljósi að ástundun íþróttarinnar fyrir polla, börn, unglinga og ungmenni skuli vera þroskandi, líkamlega, sálrænt og félagslega. Með því móti má skapa þeim æskulýð sem stundar hestaíþróttina aðstæður til að njóta sín innan hennar á sínum forsendum, getustigi og áhuga. Með afreksstarfi og hæfileikamótun má skapa börnum, unglingum og ungmennum aðstæður og þjálfun til að verða afreksmenn seinna meir á lands- og alþjóðamælikvarða.
Að sama skapi þarf að skapa aðstæður fyrir börn, unglinga og ungmenni sem ekki stefna á eða velja afreks keppnishestamennsku, að njóta íþróttarinnar á sínum forsendum við útreiðar sér til ánægju og yndisauka. Þess vegna er einnig mikilvægt að stuðla að félagslegum tengslum bæði með og án hesta, þannig að það skapi félagslega blöndun innan hópsins burtséð frá áhugasviði eða metnaði hvers og eins.
Stór hluti iðkenda hestaíþrótta á vegum félagsins eru fullorðnir einstaklingar og býður félagið upp á metnaðarfullt framboð af námskeiðum fyrir knapa á öllum getustigum. Félagið stendur fyrir metnaðarfullu keppnishaldi þar sem boðið er upp á marga getuflokka þannig að keppendur eiga að geta fundið sér farveg í keppni á sínum forsendum og getustigi. Keppendur eru hvattir til að sýna metnað í skráningu í flokka á mótum á vegum félagsins.
1.2 Skilgreiningar
Aldur miðast við almanaksárið. Flokkum í hestaíþróttum er skipt upp eftir aldri.
- Pollaflokkur: Öll börn sem eru 9 ára á árinu eða yngri.
- Barnaflokkur: Börn 10 – 13 ára gömul á almanaksárinu.
- Unglingaflokkur: Unglingar 14 – 17 ára gömul á almanaksárinu.
- Ungmenni: Ungmenni 18 – 21 ára gömul á almanaksárinu.
- Fullorðnir: Fullorðnir einstaklingar sem eru 22 ára og eldri
1.3 Meginstefna
1.3.1 Pollaflokkur
Markmið:
- Kynna hestinn (eðli hans og atferli) og hestamennsku fyrir barninu á breiðum grunni á fjölbreyttan, jákvæðan hátt.
- Byggja upp traust við hestinn.
- Byggja upp jafnvægi og ásetu.
- Jákvæð upplifun með hestinum.
- Leikur í fyrirrúmi og skemmtilegar æfingar.
Leiðir:
- Fjölbreytni í æfingavali.
- Áhersla á leik og gleði.
- Jöfn tækifæri fyrir alla.
Keppni:
- Keppni er ekki markmið.
- Allir fái að vera með í keppni og enginn útilokaður vegna getu.
- Boðið er upp á pollaflokk á mótum án sætaröðunar.
- Boðið er upp á tvo keppnisflokka í pollaflokki, þ.e. teymdir og ríðandi.
Verðlaun:
- Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku.
1.3.2 Barnaflokkur
Markmið:
- Iðkendur læri helstu hugtök í hestamennsku og læri að kunna skil á grunnæfingum í liðkandi vinnu með hestinum.
- Lögð er áhersla á fræðslu um gildi grunnþjálfunar reiðhestsins og mikilvægi góðrar ásetu.
- Að vekja áhuga barnsins á hestamennsku fyrir lífstíð.
- Áhersla á háttvísi og íþróttamannslega framkomu.
Leiðir:
- Að æfingar séu fjölbreyttar og skemmtilegar.
- Að öll börn fái tækifæri til æfinga og keppni miðað við þroska og getu.
- Áhersla er lögð á að skapa börnum félagslega góðar aðstæður innan félagsins með því að stuðla að félagslegum viðburðum bæði með og án hesta.
Keppni:
- Áhersla á að allir fái tækifæri til að vera með í keppni og enginn skuli útilokaður vegna getu knapa eða hests.
- Þátttaka á mótum er bæði innan félags og á landsvísu.
- Löglegar keppnir á vegum félagsins fara eftir reglum LH og FEIF.
- Ólögleg mót eru haldin með hliðsjón af reglum LH og FEIF.
- Lög og reglur er að finna á heimasíðu LH: lh.is
- Börnum skal innrætt að úrslit í keppni skipti ekki höfuðmáli, heldur eigi þau að stefna að því að ná eins góðum árangri fyrir sig sjálf og sinn hest eins og þau geta.
Verðlaun:
- Í keppni er raðað eftir einkunnum dómara í íþrótta- og gæðingamótum. Í firmakeppni og vetrarleikum er keppendum í úrslitum raðað í sæti.
- Efsta sætið hlýtur oftast bikar en önnur sæti medalíur.
- Ekki eru veitt þátttökuverðlaun í barnaflokki nema það sé sérstaklega tekið fram í auglýsingu móta.
- Á Reykjavíkurmeistaramóti verður efsti Fáksfélaginn Reykjavíkurmeistari í hverri keppnisgrein.
- Á uppskeruhátíð félagsins er veitt viðurkenning fyrir stigahæstu stúlku og dreng í barnaflokki. Einnig eru veittar viðurkenningar fyrir landsmóts- og íslandsmeistaratitla.
1.3.3 Unglingaflokkur
Markmið:
- Að skapa félagslega jákvæðar aðstæður og umhverfi með íþróttastarfinu.
- Að kynna keppnis- og afrekshestaíþróttamennsku fyrir unglingunum og þann hugsunarhátt sem er nauðsynlegur til að árangur náist.
- Að kynna hestamennskuna einnig sem almenningsíþrótt til ástundunar sér til ánægju og yndisauka og að ekki þurfi endilega að einblína á keppni í íþróttagreininni.
Leiðir:
- Æfingar byggjast á að byggja bæði upp knapa og hest.
- Unnið með tæknilega færni og liðkandi reiðmennskuæfingar.
- Vinna á markvissan hátt með jákvæð samskipti og ýta undir aukið sjálfstraust iðkenda.
- Fræðsla um heilbrigðan lífstíl.
- Allir fái tækifæri til æfinga og/eða keppni miðað við þroska, getu og áhuga.
- Áhersla er lögð á að skapa unglingum félagslega góðar aðstæður innan félagsins með því að stuðla að félagslegum viðburðum bæði með og án hesta.
Keppni:
- Áhersla á að allir fái tækifæri til að vera með í keppni og enginn skuli útilokaður vegna getu knapa eða hests.
- Þátttaka á mótum er bæði innan félags og á landsvísu.
- Löglegar keppnir á vegum félagsins fara eftir reglum LH og FEIF.
- Ólögleg mót eru haldin með hliðsjón af reglum LH og FEIF.
- Lög og reglur er að finna á heimasíðu LH: lh.is
- Unglingum skal innrætt að úrslit í keppni skipti ekki höfuðmáli, heldur eigi þau að stefna að því að ná eins góðum árangri fyrir sig sjálf og sinn hest eins og þau geta.
Verðlaun:
- Í keppni er raðað eftir einkunnum dómara í íþrótta- og gæðingamótum. Í firmakeppni og vetrarleikum er keppendum í úrslitum raðað í sæti.
- Efsta sætið hlýtur oftast bikar en önnur sæti medalíur.
- Á Reykjavíkurmeistaramóti verður efsti Fáksfélaginn Reykjavíkurmeistari í hverri keppnisgrein.
- Á uppskeruhátíð félagsins er veitt viðurkenning fyrir stigahæstu stúlku og dreng í unglingaflokki. Einnig eru veittar viðurkenningar landsmóts- og íslandsmeisturum.
1.3.4 Ungmennaflokkur
Markmið:
- Efla líkamlegt atgervi bæði knapa og hests og efla tæknilega færni knapa.
- Skapa félagslega jákvæðar aðstæður og umhverfi með íþróttastarfinu.
- Að kynna keppnis- og afreksíþróttahestamennsku og þann hugsunarhátt sem er nauðsynlegur til að árangur náist.
- Innleiða afrekshugsun.
- Hafa möguleiga á að stunda íþróttina sem almenningsíþrótt, sér til ánægju og heilsuræktar.
Leiðir:
- Æfingar byggjast á að byggja bæði upp knapa og hest.
- Unnið með tæknilega færni og liðkandi reiðmennskuæfingar.
- Vinna á markvissan hátt með jákvæð samskipti og ýta undir aukið sjálfstraust iðkenda.
- Fræðsla um heilbrigðan lífstíl og forvarnarfræðsla gegn vímuefnanotkun.
- Allir fái tækifæri til æfinga og/eða keppni miðað við þroska, getu og áhuga.
Keppni:
- Þátttaka á mótum er bæði innan félags og á landsvísu, sem og á norðurlanda- og heimsmeistaramótum.
- Löglegar keppnir á vegum félagsins fara eftir reglum LH og FEIF.
- Ólögleg mót eru haldin með hliðsjón af reglum LH og FEIF.
- Lög og reglur er að finna á heimasíðu LH: lh.is
- Ungmennum skal innrætt að úrslit í keppni skipti ekki höfuðmáli, heldur eigi þau að stefna að því að ná eins góðum árangri fyrir sig sjálf og sinn hest eins og þau geta.
Verðlaun:
- Í keppni er raðað eftir einkunnum dómara í íþrótta- og gæðingamótum. Í firmakeppni og vetrarleikum er keppendum í úrslitum raðað í sæti.
- Efsta sætið hlýtur oftast bikar en önnur sæti medalíur.
- Á Reykjavíkurmeistaramóti verður efsti Fáksfélaginn Reykjavíkurmeistari í hverri keppnisgrein.
- Á uppskeruhátíð félagsins er veitt viðurkenning fyrir stigahæstu konu og karl í ungmennaflokki. Einnig eru veitt viðurkenningar fyrir landsmóts- og íslandsmeistaratitla, sem og norðurlanda- og heimsmeistaramótstitla.
1.3.5 Fullorðnir
Markmið:
- Efla tæknilega færni knapa í að byggja upp sinn reið- og/eða keppnishest.
- Skapa félagslega jákvæðar aðstæður og umhverfi með félagsstarfinu.
- Jafn möguleiki er á að stunda íþróttina sem keppnisíþrótt og sem almenningsíþrótt, sér til heilsuræktar og útivistar.
Leiðir:
- Æfingar byggjast á að byggja bæði upp knapa og hest, eru alhliða og fjölþættar þannig að allir þjálfunarþættir séu teknir fyrir m.t.t. stöðu og hæfileika hvers einstaklings og hests.
- Vinna á markvissan hátt með jákvæð samskipti milli félagsmanna.
- Allir fái tækifæri til æfinga og/eða keppni miðað við getu og áhuga.
Keppni:
- Þátttaka á mótum er bæði innan félags og á landsvísu, sem og á norðurlanda- og heimsmeistaramótum.
- Löglegar keppnir á vegum félagsins fara eftir reglum LH og FEIF.
- Ólögleg mót eru haldin með hliðsjón af reglum LH og FEIF.
- Lög og reglur er að finna á heimasíðu LH: lh.is
- Keppni er styrkleikaskipt eftir því sem við á á mótum.
Verðlaun:
- Í keppni er raðað eftir einkunnum dómara í íþrótta- og gæðingamótum. Í firmakeppni og vetrarleikum er keppendum í úrslitum raðað í sæti.
- Efsta sætið hlýtur oftast bikar en önnur sæti medalíur.
- Á Reykjavíkurmeistaramóti verður efsti Fáksfélaginn Reykjavíkurmeistari í hverri keppnisgrein í hverjum flokki.
- Á uppskeruhátíð félagsins er veitt viðurkenning fyrir stigahæstu konu og karl í áhugamannaflokki og stigahæstu konu og karl í atvinnumannaflokki. Einnig eru veittar viðurkenningar þeim sem vinna landsmóts- og íslandsmeistaratitla.
- Félagið útnefnir knapa ársins sem er tilnefndur til íþróttamanns ársins hjá ÍBR.