Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla hjá Hestamannafélaginu Fáki

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er:
Einar Gíslason, framkvæmdastjóri.

Tilgangur vöktunarinnar:
Í öryggis- og eignavörsluskyni í og við fasteignir Fáks.

Heimild til vinnslu:
Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna Fáks af öryggis- og eignavörslu. Að öðru leiti er vísað í 4. grein persónuverndarstefnu Fáks.

Tegundir persónuupplýsinga:
Komi upp atvik í fasteignum er unnið með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.

Viðtakendur:
Allt myndefni er aðgengilegt vinnsluaðilanum, Hestamannafélaginu Fáki, sem hefur umsjón með framkvæmd vöktunarinnar. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Varðveislutími myndefnis:
Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt.

Réttindi einstaklinga:
Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd:
Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.