Afreks- og hvatningarsjóður Fáks

Sjóðurinn er stofnaður á stjórnarfundi hestamannafélagsins Fáks („Fákur“ eða „félagið“) þann 19. janúar 2026.

  1. Markmið sjóðsins

Markmið sjóðsins er að styðja fjárhagslega við bakið á hestaíþróttafólki Fáks í yngri flokkum, þ.e. börnum, unglingum og ungmennum. Fjárhagslegur styrkur er veittur vegna námskeiða, æfinga, þjálfunar og/eða keppni, sem og til þátttöku á stórmótum. Þannig er hestaíþróttafólki Fáks búin betri aðstaða til ástundunar íþróttar sinnar og til þess að ná betri árangri.

Sjóðurinn styður við bakið á þeim sem taka þátt í námskeiðum á vegum félagsins, keppa á stórmótum fyrir hönd þess og/eða eru í U21 landsliði Íslands og hæfileikamótun LH. Einnig veitir sjóðurinn sérstaka styrki til þeirra einstaklinga sem keppa fyrir hönd Íslands á norðurlanda- og heimsmeistaramótum. Sjóðurinn skal vera hvatning fyrir knapa til að ná auknum árangri í íþróttinni og til að vera verðugir fulltrúar félagsins, bæði innan lands, sem og utan.

Einnig styður sjóðurinn við bakið á efnilegum einstaklingum sem hafa ekki fjárhagslegan bakhjarl til ástundun íþróttarinnar en hafa metnað og vilja til þess að ná árangri í íþróttinni. Ekki er áskilið að viðkomandi stundi eða hafi hug á að stunda íþróttina sem keppnisgrein.

  1. Skipan

Stjórn Fáks skipar þriggja manna nefnd til eins árs í senn. Í nefndinni skulu sitja:

  1. Fulltrúi úr aðalstjórn Fáks, eða fulltrúi sem aðalstjórn skipar (formaður nefndarinnar).
  2. Yfirþjálfari félagsins.
  3. Einn utanaðkomandi aðili, t.a.m. reyndur afreksknapi með þekkingu á hestamennsku sem afreksíþrótt.
  1. Verksvið

Verksvið nefndarinnar er að auglýsa eftir umsóknum í sjóðinn, tilnefna styrkhafa, ákvarða styrkveitingar, hafa eftirlit með nýtingu styrkveitinga og sinna fjáröflun og kynningarstarfi sjóðsins.

  1. Fjármögnun

Stofnframlag sjóðsins nemur 10% af EBITDA hagnaði félagsins fyrir árið 2025. Að stofnun sjóðsins lokinni verða tekjur sjóðsins eftirfarandi:

    1. Verði hagnaður af starfsemi Fáks hefur stjórn heimild til að veita 5% – 10% af EBITDA hagnaði félagsins inn í sjóðinn.
    2. Opinberir aðilar, fyrirtæki og einstaklingar geta lagt fram styrktarfé í sjóðinn.
    3. Einstaka nefndir innan félagsins geta ánafnað sjóðnum allt að 50% af hagnaði viðburða sem nefndirnar halda.
    4. Vaxtatekjur sjóðsins

Fjárframlag sem miðast við hagnað félagsins skal greitt inn í sjóðinn eftir að aðalfundur félagsins hefur staðfest ársreikning þess. Ekki er miðað við að sjóðurinn sé endilega tæmdur milli ára, heldur skal litið á hluta framlags í hann sem grunnsjóð sem skuli bera vexti til að tryggja samfellu hans milli ára.

  1. Úthlutunarskilyrði

Aðeins knapar sem iðka íþrótt sína undir merkjum Fáks geta sótt um styrkveitingar í sjóðinn. Viðkomandi þarf því að vera skráður félagsmaður í Fáki og hafa greitt félagsgjöld, eigi það við og að hafa keppt undir merkjum Fáks á keppnistímabilinu.

Væntanlegur styrkþegi sem er afreksknapi, þarf að stefna að því að vera eða þegar vera í fremstu röð á stórmótum (Reykjavíkurmeistaramót, Íslandsmót, Landsmót, Norðurlandameistaramót og Heimsmeistaramót). Það styrkir umsóknina ef viðkomandi knapi er í U21 landsliði Íslands í hestaíþróttum og/eða í hæfileikamótun LH.

Tekið er mið af eftirfarandi:

  1. Hvaða námskeið hjá Fáki voru sótt á árinu.
  2. Hvaða aðra þjálfun hlaut iðkandi á árinu.
  3. Á hvaða mótum var keppt á á árinu.
  4. Árangri á mótum á árinu.
  5. Heildarkostnaði vegna námskeiða, þjálfunar og keppni á árinu.

Sjóðurinn hefur einnig heimild til að styrkja efnilega einstaklinga eða hópa í yngri flokkum til þátttöku í námskeiðum á vegum félagsins og/eða til þátttöku í mótum, eftir því sem við á og þurfa þeir knapar ekki endilega að stefna á að stunda íþróttina sem afreksíþrótt.

Tekið er mið af eftirfarandi:

  1. Hvaða námskeið hjá Fáki voru sótt á árinu.
  2. Hvaða aðra þjálfun hlaut iðkandi á árinu.
  3. Meðmælum frá þjálfara.
  4. Heildarkostnaði vegna námskeiða, þjálfunar og keppni á árinu.
  5. Röksemdafærslu frá foreldri eða forráðamanni fyrir þátttöku félagsins í kostnaði viðkomandi iðkanda.
  1. Umsóknir um styrki

Auglýst verður árlega eftir umsóknum um styrki fyrir 15. september ár hvert með eins mánaðar fyrirvara. Umsóknir skulu berast afreks- og hvatningarsjóðsnefnd eigi síðar en 15. október á tölvutæku formi.

Styrkir þurfa að vera í nafni þess iðkanda sem sækir um styrkinn. Með umsókninni skal fylgja:

  1. Upplýsingar um íþróttamanninn.
  2. Upplýsingar um foreldri eða forráðamann.
  3. Umsögn um íþróttamanninn frá þjálfara.
  4. Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram:
    1. Hvaða námskeið hjá Fáki voru sótt á árinu.
    2. Hvaða aðra þjálfun hlaut iðkandi á árinu.
    3. Á hvaða mótum keppti iðkandi á árinu.
    4. Hver var árangur iðkanda á mótum.
    5. Meðmæli frá þjálfara.
    6. Heildarkostnaður vegna námskeiða, þjálfunar og keppni á árinu.
    7. Röksemdarfærsla frá foreldri eða forráðamanni.

Nefnd afreks- og hvatningarsjóðs skal svara öllum umsóknum sem berast skriflega.

Nefndinni er heimilt að hafa frumkvæði að einstökum styrkveitingum til að mynda til að styrkja unglinga og ungmenni til þátttöku í verkefnum landsliðs Íslands í hestaíþróttum. Nefndin áskilur sér rétt til að afla sér nánari upplýsinga til þeirra sem fram koma á umsóknareyðublaði og leita umsagnar annarra aðila, sem ekki eru sérstaklega tilgreindir, um umsækjandann. Allar þær upplýsingar sem nefndin aflar um umsækjanda skulu vera trúnaðarmál og skal umgangast þær sem slíkar. Að öðru leiti er vísað til persónuverndarstefnu félagsins um meðferð rekjanlegra persónugreinanlegra gagna hjá félaginu.

Styrkveitingar þær sem nefndin ákveður, skulu bornar undir aðalstjórn Fáks til staðfestingar.

Aðalstjórn Fáks afhendir styrk- eða styrksloforð úr afreks- og hvatningarsjóði.

  1. Greiðsla styrkja

Styrkir greiðast fyrir 1. desember hvert ár. Styrksupphæðir miðast við fjármagnsgetu sjóðsins hverju sinni. Að jafnaði skal ekki veita meira fé út úr sjóðnum en sem nemur innkomu hans á hverju ári.

  1. Skyldur styrkþega

Allir þeir hestaíþróttamenn sem þiggja styrk úr afreks- og hvatningarsjóði Fáks skulu hlíta þeim reglum sem ÍSÍ setur um lyfja- og vímuefnanotkun og um lyfjaeftirlit. Einnig skulu styrkþegar fara eftir siðareglum og hegðunarviðmiðum sem félagið hefur sett. Styrkþegar skulu vera góðar fyrirmyndir innan vallar sem utan.

  1. Varsla afreks- og hvatningarsjóðs

Ábyrgð á vörslu og reikningshaldi sjóðsins ber gjaldkeri Fáks. Skoðaða reikninga sjóðsins skal birta árlega í ársreikningi félagsins. Skoðunarmenn Fáks eru jafnframt skoðunarmenn sjóðsins. Stjórn Fáks skal á hverjum aðalfundi félagsins greina frá styrkveitingum úr sjóðnum.

  1. Gildistími

Starfsreglur þessar tóku gildi á stjórnarfundi Fáks þann 19. janúar 2026 og gilda þar til annað hefur verið ákveðið af stjórn Fáks.

Verði sjóðnum slitið skal sú ákvörðun tekin af aðalstjórn Fáks og skal úthluta öllum höfuðstól sjóðsins til afreks og hvatningarstarfs í hestaíþróttum.

  1. Kynningarmál

Auglýsa skal eftir umsóknum í sjóðinn með áberandi hætti, bæði á heimasíðu félagsins, sem og á samfélagsmiðlum þess. Framkvæmdastjóri Fáks mun sjá um að koma tilkynningu til fjölmiðla um úthlutanir úr sjóðnum sem og annað fréttnæmt tengt honum. Að gefnu samþykki þeirra hestaíþróttamanna sem sjóðurinn styrkir og eftir atvikum foreldra þeirra, getur stjórn Fáks nýtt sér krafta þeirra til ýmissa kynningarmála fyrir félagið.