Ójá það styttist hratt í hið víðfræga kvennakvöld Fáks sem verður haldið laugardaginn 7. mars nk. Sést hefur til Fákskvenna spranga búð úr búð og biðja um “Rokkabillygelluklæðnað” því það á að toppa sig eins og alltaf í búningaútgerðinni. Einnig hefur aukist salan á kuldagöllum og svefnpokum því allar mæta þær í röðina og bíða eftir því að miðasalan opni í félagsheimilinu laugardeginum áður (28. febr).
Allar dömur, konur og stúlkur taka daginn frá, “pleysa” kallinum fyrir framan sjónvarpið svo hægt sé að komast í fyrirpartý, kaupa smurefni svo auðveldara verði að komast í ballgallann, skuttla börnunum í pössum því það verður mega stuð og dansað af sér rassga… þetta kvöld eins og venjulega.
Sjáumst hressar og kátar á kvennakvöldi Fáks
Stjórn kvennadeildarinnar