Hestamannafélagið Fákur auglýsir starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar.
Starfið felst m.a. í eftirfarandi:
- Veita forstöðu skrifstofu félagsins
- Sjá um rekstur hesthúsa og Reiðhallarinnar
- Tengiliður við nefndir félagsins
- Umsjón með mótahaldi
- Umsjón með skipulagningu helstu viðburða félagsins
- Umsjón með umhirðu valla og svæðis
- Tengiliður við stjórn Fáks
- Úthluta verkefnum til undirnefnda eftir því sem við á
- Miðlun upplýsinga til félagsmanna með t.d. samfélagsmiðlum o.s.frv.
Hæfniskröfur:
Umsækjendur þurfa að hafa góða skipulags- og stjórnunarhæfileika, vera félagslega sinnaðir og hafa áhuga á hestamennsku. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að ganga í öll störf félagsins, jafnt utandyra sem innan.
Vera reiðubúinn að leggja sitt af mörkum í frekari uppbyggingu félagsins, vera skipulagður og lausnamiðaður. Vera jákvæður og samviskusamur og hafa drifkraft sem nýtist í starfi auk góðrar tölvukunnáttu og sjálfstæðis í vinnubrögðum.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 31. október á fakur@fakur.is