Fáksmenn hafa forgang í dag, 1. maí, til að skrá á Reykjavíkurmeistaramótið sem haldið verður í Víðidalnum 9.-14. maí n.k. Frá og með 2. maí, munu skráningar opnast fyrir aðra keppendur.

Skráningarfresti lýkur síðan á miðnætti þann 4. maí. Mjög strangt verður tekið á þessum skráningarfresti, ekki verður hægt að skrá eftir að honum lýkur og ekki verður tekið við skráningum sem berast með tölvupósti, þ.e. allar skráningar skulu fara í gegnum Skráningarkerfi Sportfengs:http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Dagskrá verður á þá leið að fjórgangur verður á þriðjudegi og miðvikudegi, fimmgangur á fimmtudegi, tölt á föstudegi og skeið á laugardegi. Athugið þó að þetta fer alveg eftir skráningu og eru þess vegna drög á þessum tímapunkti.

Í ár verður settur hámarksfjöldi þátttakenda í hringvallargreinarnar, sjá töflu:

Keppnisgrein Hámark
Fjórgangur ungmennaflokkur V2 25
Fjórgangur unglingaflokkur V2 35
Fjórgangur 1. flokkur V2 30
Fjórgangur 2. flokkur V2 25
Fjórgangur meistaraflokkur V1 20
Fjórgangur börn V2 25
Fjórgangur minna vanir V5 8
Fimmgangur 1.flokkur F2 20
Fimmgangur Ungmenni F2 15
Fimmgangur unglingar F2 15
Fimmgangur 2. flokkur F2 15
Fimmgangur meistaraflokkur F1 25
Tölt ungmenni T3 20
Tölt unglinga T3 25
Tölt T7 opinn flokkur 12
Tölt T7 17 ára og yngri 8
Tölt börn T3 15
Tölt 2.flokkur T3 20
Tölt 1. flokkur T3 20
Tölt meistara T1 25
Tölt T2 meistaraflokkur 7
Tölt T4 ungmennaflokkur 10
Tölt T4 unglingaflokkur 10
Tölt T4 1. flokkur 10
Tölt T4 2. flokkur 5

Skráningargjöldin verða þau sömu og 2016:

Meistaraflokkur – 6.500 kr. (nema gæðingaskeið 6.000 kr.)
1.flokkur, 2.flokkur og ungmennaflokkur – 6.000 kr.
Unglingaflokkur og barnaflokkur – 4.500 kr.
Kappreiðaskeið – 4.500 kr.
Hér er nýjasta útgáfan af lögum og reglum LH og FEIF, keppendur eru ábyrgir fyrir því að kynna sér þær: http://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/2017/lh_logogreglur_28032017_prent.pdf

Mótanefnd Fáks