Laugardaginn 31.janúar héldum við glæsilegt T7 Töltmót í Lýsishöllinni. Boðið var uppá vöfflur, heitt súkkulaði og kaffi og skráning á staðnum. Þátttaka var frábær en 67 skráningar bárust og vill mótanefnd þakka fyrir glæsilegan dag og skemmtilegt mót.
Hlíf Sturludóttir, formaður Fáks kom og veitti verðlaun til keppenda

úrslit voru eftirfarandi

Pollaflokkur: 
Rakel Lilja 7 ára og Sandra frá Árbæjarhjáleigu 2
Sigurbjörn Magnússon 3 ára og Röskvi frá Meðalfelli
Bjartur Fjölnisson 5 ára og Hamingja frá Hásæti
Jón Valur Ingvarsson 6 ára og Ísak frá Laugamýri
Baldur Ingvarsson 6 ára og Dáð frá Jórvík
Indíana Gló Snorradóttir 5 ára og Valur frá Laugabóli
Aríana Elín 8 ára og Alfa frá Árbæjarhjáleigu 2

Börn – Minna vanir 
1.sæti Embla Siren Matthíasdóttir og Gróði frá Naustum
2.sæti Jóhanna Lea Hjaltadóttir og Tónn frá Hestasýn
3.sæti Harpa Rún Sveinbjörnsdóttir og Gyllir frá Oddgeirshólum
4.sæti Ellý Ohm Bjarnadóttir og Ljómi frá Reykjavík
5.sæti Rebekka og Glóð


Börn – Meira vanir

1.sæti Valdís Mist Eyjólfsdóttir og Hrund frá Þingnesi
2.sæti Svala Björk Hlynsdóttir og Eindís frá Auðsholtshjáleigu
3.sæti Guðrún Lára Davíðsdóttir og Hekla frá Eylandi
4.sæti Oliver Siren Matthíasson og Öfgi frá Káratanga
5.sæti Helga Rún Sigurðardóttir og Myrkvi frá Árbæ
6.sæti Líf Einarsdóttir og Hugrún frá Blesastöðum 1A

Unglingaflokkur
1.sæti Bertha Liv Bergstað og Nátthrafn frá Kjarrhólum
2.sæti Elísabet Emma Björnsdóttir og Aðgát frá Víðivöllum fremri
3.sæti Fríða Hildur Steinarsdóttir og Þyrnir frá Enni
4.sæti Sigurður Ingvarsson og Ísak frá Laugamýri
5.sæti Katrín Diljá Andradóttir og Valur frá Brekkubæ

Ungmennaflokkur
1.sæti Milla Logan og Seifur frá Brekkubæ
2.sæti Íris Marín Stefánsdóttir og Þráður frá Hrafnagili
3.sæti Nadia Dyrby Nielsen og Krúna frá Ölduhofi
4.sæti Andrea Isager Lindberg og Massi frá Staðarhofi
5.sæti Sigrún Björk Björnsdóttir og Elva frá Staðarhofi

2.Flokkur 
1.sæti Kjartan Sturluson og Rökkva frá Seylu
2.sæti Helga Bogadóttir og Þytur frá Syðri brúnavöllum
3.sæti Jagoda Zaslawska og Konráð frá Gunnbjarnarholti
4.sæti Birna Ólafsdóttir og Andvari
5.sæti Kristín Birna Óskarsdóttir og Alma frá Breiðholti í Flóa

1.Flokkur
1.sæti Henna Siren og Auga-Steinn frá Árbæ
2.sæti Vigdís Matthíasdóttir og Glódís frá Brekkum
3.sæti Rut Skúladóttir og Þoka frá Eylandi
4.sæti Edda Sóley Þorsteinsdóttir og Laufey frá Ólafsvöllum
5.sæti Ingunn Birta Ómarsdóttir og Júní frá Fossi

Mótanefnd þakkar öllum kærlega fyrir þátttökuna, við hlökkum til að sjá ykkur næst á Vetrarleikum I sem verða haldnir 14.febrúar