Meistaradeild Líflands og æskunnar verður haldin á vorönn 2018. Mótaröðin fer fram í TM-höllinni í Fáki.
Knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri ársins 2017. Knapar sækja um sem einstaklingar og búa sjálfir til lið. Hvert lið skipar 4 knapa, allir knapar keppa á hverju móti en 3 efstu telja til stiga, nema á síðasta mótinu telja stig allra knapa.
Dagsetningar mótaraðarinnar eru:
- 18. febrúar 2018 – fjórgangur
- 4. mars 2018 – fimmgangur
- 18. mars 2018 – tölt
- 8. apríl 2018 – T2 og PP1
Umsóknarfrestur er til 15. september 2017 og skulu umsóknir berast á netfangð: meistaradeild2018@gmail.com. Reglur deildarinnar verða kynntar á fundi þar sem öll liðin verða kynnt. Stórn deildarinnar áskilur sér rétt til að breyta dagsetningum ef ástæða þykir til.
Stjórn Meistaradeildar Líflands og æskunnar:
Jóna Dís Helgadóttir
Helga B. Helgadóttir
Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir
Sigurður Ævarsson