Landsþing Landssambands hestamannafélaga verður haldið á Selfossi dagana 17. og 18. október í boði hestamannafélagsins Sleipnis. Að venju sendir Fákur einvala lið sem sína fulltrúa og eigum við 21 þingfulltrúa á þinginu.
Í lögum Fáks segir hverjir eru sjálfkjörnir fulltrúar en það eru stjórn félagsins, framkvæmdarstjóri og formenn starfsnefnda. Síðan er kosið um þá sem upp á vantar (8 aðra þingfulltrúa). Einnig segir í lögunum að stjórn Fáks geti síðan valið inn aðra þingfulltrúa ef þarf.
Á aðalfundunum í voru voru kosnir 8 þingfulltrúar. Kjörnefnd var kosinn sem kom síðan saman og taldi atkvæðin en í henni voru; Birgir Rafn Gunnarsson, Ægir Jónsson og Jón Finnur Hansson. Þeir sem hlutu kosningu á Landsþingið voru;
Berglind Ragnarsdóttir
Edda Rún Ragnarsdóttir
Helga Claessen
Helga B Helgadóttir
Guðmundur Guðlaugsson
Sigurður Vignir Matthíasson
Sigurlaug Anna Auðunsdóttir
Þóra Þrastardóttir
Fljótlega í september verður opinn fundur með Landsþingsförum þar sem farið verður yfir tillögur sem Fákur vill og mun leggja fyrir Landsþingið (nánar auglýst síðar).