Keppnisnámskeið fyrir börn og unglinga með Vigdísi Matthíasdóttur verður dagana 21. – 22. apríl. Námskeiðið verður þannig uppsett að hver nemandi færi einkatíma laugardag og sunnudag ca 45 – 60 mín. Námskeiðið er m.a. tilvalið fyrir þau sem ætla í úrtöku fyrir landsmót en námskeiðið sem hún hélt fyrir okkur fyrr í vetur vakti mikla lukku. Námskeiðið verður kennt bæði inni og úti eftir veðri.
Aldurstakmark er 10 -17 ára. Námskeiðsgjald er krónur 15.000.- Athugið takmarkað framboð tíma fyrstur kemur fyrstur fær.
Skráning á fakur@fakur.is