Ræktunarbikar Fáks er farandbikar sem gefinn var af Rangárbökkum í tilefni 80 ára afmælis Fáks og er veittur þeim félagsmanni sem ræktað hefur og á það kynbótahross sem er með hæstan kynbótadóminn það árið, en getur þó aðeins fengið bikarinn einu sinni út á hvert hross.
Í ár var Villingur frá Breiðholti með hæstan dóm af þeim kynbótahrossum sem ræktuð voru og í eigu félagsmanns í Fáki. Kári Stefánsson er ræktandi og eigandi að Villingi og hlaut hann því rækturnarbikar Fáks sem var veittur á Uppskeruhátíð Fáks þann 28. nóv.
Villingur frá Breiðholti fékk 8,68 í aðaleinkunn á Landsmótinu og var sýndur af knapa Fáks 2014, Árna Birni Pálssyni. Villingur er undan gæðingunum Gruni frá Oddhóli og Gunnvöru frá Miðsitju. Það er því í honum tvöföld Krafla frá Sauðárkóki í gegnum Spuna föður Gunnvarar og Kraflar sem er faðir Gruns, en þeir máttastólparnir Ófeigur frá Flugumýri og Hrafn frá Holtsmúla eru einnig stutt undan.
Villingur hlaut eftirfarandi dóm á Landsmótinu á Gaddstaðaflötum í sumar.
IS-2008.1.87-685 Villingur frá Breiðholti í Flóa
Sýnandi: Árni Björn Pálsson
Mál (cm): 142 130 137 64 142 36 48 41 6.4 30.5 18.5 Hófa mál: V.fr. 9,0 V.a. 8,4 Aðaleinkunn: 8,68 |
Sköpulag: 8,31 | Kostir: 8,93 |
Höfuð: 7,5 2) Skarpt/þurrt 6) Fínleg eyru F) Krummanef Háls/herðar/bógar: 8,5 Bak og lend: 9,0 Samræmi: 8,5 Fótagerð: 8,0 Réttleiki: 7,5 Hófar: 8,5 Prúðleiki: 8,5 |
Tölt: 9,0 1) Rúmt 3) Há fótlyfta 5) Skrefmikið Brokk: 8,0 Skeið: 9,5 Stökk: 8,5 Vilji og geðslag: 9,5 Fegurð í reið: 9,0 Fet: 8,0 Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 8,0 |