Reglubundin hófhirða og járning er lykilatriði í hestamennsku til þess að halda fótum og hófum hestsins heilbrigðum og þannig stuðla að endingu hestsins.
Caroline Aldén og Sigurgeir Jóhannsson hafa járningar að fullri atvinnu og reka járrningafyrirtæki og hafa haldið námskeið hér á landi undanfarin ár.
Caroline er frá Svíþjóð og hefur búið að íslandi síðan 2010 og hefur lokið 3.ára námi við járningarskólan Wången í Svíþjóð, Sigurgeir lauk námi frá sama skóla vorið 2021. Hann er einnig formaður járningarfélag Íslands.
Bæði hafa þau lengi verið í hestum og áhuginn fyrir járningum vaknaði snemma.
Þau hafa mikla reynslu af járningum, allt frá ferðahestum til topp keppnins og kynbótahrossa. Caroline starfar einnig sem járningakennari á hestabraut í Fjölbrautarskóla Suðurlands.

Sunnudaginn 19 april.
Frá kl.09:00-10:30 bóklegt/fyrirlestur í anddyri reiðhallarinnar
10:30-12:00 Sýnikennsla
12:00-13:00 matur
13:00- 16:00/17:00 verklegt

Innifalið í námskeiðsgjaldi er skeifur, fjaðrir og lappir til að járna ef nemandi kemur ekki með eigin hest til að járna.

Verð 18.000
Skráning fer fram á sportabler