Fákur og Þorgrímur Hallgrímsson verða með járningarnámskeið  13. og 14. nóvember nk. (ef næg þátttaka næst).  Bóklegt verður kennt föstudagskvöldið (13. nóv.) í Guðmundarstofu frá kl. 18:00  – 20:00 . Verklegt verður síðan á laugardagsmorguninn þar sem nemendur koma með sína hesta (eða við getum hjálpað til við að redda hestum) og járna þá undir leiðsögn Þorgríms. Nemendur verða að koma með eigin verkfæri í járningarhlutann.

Verð kr. 12:000

Skráning á fakur@fakur.is