Ístölt á Rauðavatni – 10. janúar klukkan 13:00
Laugardaginn 10. janúar klukan 13:00 ætlum við að bjóða upp á ístölt á Rauðavatni með þeim fyrirvara að veður verður hagstætt og næg þátttaka næst en opið er fyrir skráningu til kl 18:00 föstudaginn 9.janúar!
Mótið er opið öllum hestamönnum óháð hestamannafélagi
Keppt verður í eftirfarandi flokkum og í þessari röð:
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- Flokkur 2 minna vanir keppnismenn
- Flokkur 1 meira vanir keppnismenn
sýnt verður hægt tölt og frjáls ferð.
Skráning fer fram í skjali hér að neðan. Stofnuð verður krafa á keppendur í heimabanka – Skráningargjald er 2000 kr.