Nýju ári er fagnað meðal hestamanna með því að mæta á Hrossakjötsveislu Limsverja sem verður haldin í félagsheimili Fáks nk. laugardagskvöld.
Ræðurmaður kvöldsins kemur úr óvæntri átt og mun hrista vel upp í karlpungafélaginu.
Hrossakjét í sinni allri dýrð að hætti Silla Ægis enda kann hann bæði að fara vel með það lifandi sem og dautt.
Forsala á betra verðinu verður í Guðmundarstofu (Félagsheimili Fáks) fimmtudaginn 5. jan kl. 19:00-22:00 og er miðaverðið stillt í hóf að vanda sem og á gullnum veitingum.
Hlökkum til að sjá sem flesta enda allir skemmtilegir hestamenn og aðdáendur þeirra velkomnir.
Limsfélagið
s. 698-8370 Helgi