Að venju verður hópreið um miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn og hvetjum við alla til að koma og taka þátt í þessum skemmtilegum viðburði. Þeir sem ætla að mæta eru beðnir að koma annað hvort í félagsbúningi eða lopapeysum til að yfirbragð reiðarinnar verði skemmtilegt. Þeir sem ætla að mæta eru vinsamlega beðnir að senda email á fakur@fakur.is með nafni/nöfnum og símanúmerum sem og hvort laust pláss eru á kerru niður í bæ/eða vantar far fyrir hest niður eftir.

Mæting við Tanngarð (hægt að leggja þar eða við Vatnsmýrarveg) í hádeginu (rúmlega 12). Lagt af stað á slaginu 13:00 í hópreiðina.

Allir velkomnir í skemmtilegan viðburð.