Í dag hefjast Hestadagar í Reykjavík með setningu og skemmtidagskrá í Hörpunni. Að venju verður hópreið um miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn og hvetjum við alla til að koma og taka þátt í þessum skemmtilegum viðburði. Þeir sem ætla að mæta eru beðnir að koma annað hvort í félagsbúningi eða lopapeysum til að yfirbragð reiðarinnar verði skemmtilegt. Þeir sem ætla að mæta eru vinsamlega beðnir að senda email á fakur@fakur.is með nafni/nöfnum og símanúmerum sem og hvort laust pláss eru á kerru niður í bæ/eða vantar far fyrir hest niður eftir.

Á föstudeginum 4. apríl verða opin hús hjá hestamannafélögunum á Stór-Reykjavíkursvæðinu frá kl. 17:00 – 19:00. Þá verður Reykvíkingum og fleirum boðið að kíkja við hjá okkur og þiggja veitingar, teymt verður undir börnum og kíkt í hesthús. Gaman væri ef einhverjir geta séð sér fært að taka á móti gestum og sýna þeim inn í hesthúsin sín og hestana. Þau hesthús yrðu merkt og sérstaklega en gott væri ef þau eru nálægt félagsheimlinu því stefnt er að þar verði kjötsúpa á boðstólum.