Á laugardaginn kemur þann 14. febrúar verður gríðarskemmtilegt grímutöltmót í TM-Reiðhöllinni. 🙂  Mótið hefst kl 13:00 og er skráning í anddyri TM-Reiðhallarinnar frá kl. 12:00 – 12:30. Skráningagjöld eru kr. 1.000 og frítt fyrir polla og börn.

Flokkar eru eftirfarandi, og riðið í þessari röð og úrslit eftir forkeppni í hverjum flokki fyrir sig (nema í pollaflokk en þar er verðlaunað strax (allir fá verðlaun). Teymdir pollar, ríðandi pollar, börn, unglingar, ungmenni og fullorðnir.

Fyrirkomulag: Þrír saman inn á í einu og ríðið er hægt tölt og fegurðartölt (pollar ríða bara frjálst tölt).

Einnig verða veitt verðlaun fyrir búninga í eftirtöldum flokkum börn/unglingar (5 verðlaun) og ungmenni/fullorðnir (5 verðlaun).

Allir að mæta og hafa gaman saman í léttri og skemmtilegri keppni.

Hérna á Pinterest má svo finna hugmyndir að búningum fyrir hesta og menn.