Fjórðungsmót Vesturlands verður haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júní 2017. Í gæðingakeppni eiga keppnisrétt félagar í hestamannafélögum á Vesturlandi, á Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og í Skagafirði.
Á mótinu verður einnig keppt í þessum greinum og er þar um opna keppni að ræða þ.e. allir geta tekið þar þátt:
- Tölt opinn flokkur
- Tölt 17 ára og yngri
- 100 metra fljótandi skeið
- 150 metra skeið
- 250 metra skeið
- Skráningargjald í tölt er 7.000 kr. á hvern hest en 3.500 kr. á hvern hest í skeiðgreinum
- Skráning í þessar greinar hefst sunnudaginn 11. júní og lýkur á miðnætti sunnudaginn 18. júní og fer hún fram í gegnum SportFeng
- SportFengsnúmer mótsins er IS2017LM0132.
- Skráningargjöld skal greiða á reikning:
-
- kt. 450405-2050
- banki: 0326-26-002265
- kvittun fyrir greiðslu skráningargjalda skal send á netfangið thoing@centrum.is Mjög áríðandi að kvittun sé send á þetta netfang
- Í lok skráningarferlisins koma fram upplýsingar um greiðslu skráningargjalda.
Peningaverðlaun verða fyrir fyrsta sæti í tölti opnum flokki og 100 m fljótandi skeiði.