Á Sumardaginn fyrsta er næstum aldargömul hefð fyrir því að Firmakeppni Fáks fari fram og hefst mótið kl. 13:30 með pollaflokki. Eins og á vetrarleikum eru polla- og barnaflokkur inn í Reiðhöll. Heimilt að ríða hvaða gangtegund(ir) sem er svo þetta mót er tilvalið fyrir góðhestinn en keppt verður á beinu brautinni á Hvammsvellinum.

Við hvetjum alla skuldlausa félagsmenn til að taka þátt en engin skráningargjöld eru á mótið og er skráning klukkan 12:30 upp í Reiðhöll.

Boðið er upp á eftirfarandi flokka og í þessari röð:

Pollar – teymdir

Pollar – töltandi

Börn (minna vön)

Börn (meira vön)

Unglingar

Ungmenni

Konur 2 (minna keppnisvanar)

Karlar 2 (minna keppnisvanir)

Konur 1 (meira keppnisvanar)

Karlar 1 (meira keppnisvanir)