Félagshesthús Fáks2024-08-19T11:17:02+00:00

Umsóknir um pláss í félagshesthúsi Fáks 2024-2025

Uppfært 15. ágúst 2024

Opið er fyrir umsóknir í félagshesthús Fáks veturinn 2024 til 2025. Félagshesthúsið er hugsað fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-18 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku og eiga ekki aðstandendur í hestamennsku. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.

Þau sem sækja um og fá pláss koma með eigin hest og allan búnað tengdan hestinum.

Iðkendur eru hvattir til að sækja námskeið á vegum félagsins sem í boði eru yfir veturinn.

Hægt er að nýta frístundastyrki bæjarfélaganna við greiðslu á plássi fyrir hestinn.

Skilyrði fyrir umsókn:

  1. Sá aðili sem sótt er um fyrir sé milli 10-18 ára aldurs. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.
  2. Sá aðili sem sækir um hefur hug á að taka virkan þátt í félagshesthúsi Fáks, sinnir sínum hesti og tekur þátt í að vinna þau verk sem þarf að vinna í félagshesthúsinu.
  3. Hestur sem sótt er um pláss fyrir er taminn og laus við húslesti. Umsjónarmaður hesthúss sér um að raða hestum í stíur.
  4. Allir umsækjendur fá póst hvort þeim hafi verið úthlutað plássi eða ekki.
  5. Barn/unglingur verður skráð í hestamannafélagið Fák ef það er ekki félagi fyrir.
  6. Foreldrar og forráðamenn skulu vera skuldlausir við félagið.
  7. Mánaðargjald per hest fyrir börn-unglinga-ungmenni er 35.200 krónur. Innifalið eru gjafir, hey og undirburður.
    Athugið að leigutaka ber að viðra og hreinsa stíu síns hests daglega. 

Séu laus pláss til útleigu fyrir fullorðna er mánaðargjald þeirra 49.500 krónur.

Tímabil í boði:

Frá 1. september  2024 til 20. júní 2025.

Frekari upplýsingar veitir Einar í tölvupósti á einar@fakur.is

Skráningarform:

Go to Top