Þó nokkrar kvartanir hafa borist vegna lítilla beitarhólfa sem hestamenn eru að eigna sér í dalnum. Einnig hefur Reykjavíkurborg haft nokkrum sinnum samband við okkur núna í vor um þessi mál þar sem það er áréttað að beitarhólf eru ekki leyfð á svæðinu og allra síðst þar sem tré eru eins og meðfylgjandi bréf frá starfsmanni Reykjavíkurborgar ber með sér. Á þriðjudaginn kemur eftirlitsmaður frá Reykjavíkurborg og þá verður að vera búið að fjarlægja öll beitarhólf, ef ekki þá verða þau fjarlægð á kostnað eigenda.

Bréf frá Reykjavíkurborg.
Hér skal áréttað að Hestaeigendur í Víðidal hafa ekki rétt á landrými umfram það sem er innan hestagerðsins. Með þessu er verið að segja að hestar sem eru á beit utan gerðis og í skógarreitum umhverfis hesthúsin eru lausagönguhestar sem má fanga og færa til geymslu. Kostnaður sem þessu fylgir verða síðan eigendur hrossanna að greiða þegar þeir sækja hesta sína. Það hefur frekar aukist að menn beiti gras og skógarreiti sem eru við hesthúsin og jafnvel girði þau svæði af. Þetta er óheimilt eins og að framan kemur og eru aðrir hestaeigendur á svæðinu, margir hverjir, ósáttir við framkomu nágranna sinna. Því eru þeir er það stunda að að beita hesta sína á skógarsvæðin beðnir um að láta af þessari iðju og taka niður þær girðingar sem uppi eru svo að ekki hljótist kostnaður af við að leysa út hesta sem fangaðir verða.