Æskulýðsnefnd Fáks óskar eftir ungum Fáksurum til að taka þátt í og vera með í sýningarhópi Fáks. Sýningarhópur Fáks tekur þátt í stórsýningu Fáks sem fer fram um kvöldið þann 21. mars. Stefnt er að því að fara á fleiri sýningar, ef færi gefst.
Sýningarhópurinn er fyrir:
- Börn á aldrinum 10-14 ára
- Unglinga á aldrinum 14-17 ára
- Ungmenni á aldrinum 18-21 árs
ATH – Það er mikilvægt að knapar sem skrá sig séu með þægan og meðfærilegan hest sem þolir áreiti og hafi stjórn á hestinum.
Æfingar fyrir sýninguna byrja í febrúar. Um leið og skráning er orðin ljós er haft samband við þátttakendur með frekari framhald varðandi æfingatíma.
Skráning fer fram á forminu hér að neðan. Skráningarfrestur er til og með 31. janúar