Þingslitafagnaður 20.október á Hotel Natura / 90 ára afmæli Fáks. Að loknu Landsþingi hestamanna laugardaginn 20.október verður haldinn Þingslitafagnaður á Hotel Natura þar sem hestamenn af öllu landinu gleðjast saman. Úrvals matur að hætti Satt. Í forrétt er sveppasúpa og nýbakað brauð, í aðalrétt er lamb og tilheyrandi meðlæti, í eftirrétt er svo kaffi/te og konfekt. Borðhald hefst kl. 20:00. Verð kr. 5.800.-
Allir hestamenn velkomnir 🙂
Miðasala á skrifstofu Fáks, einnig er hægt að panta miða á netfanginu fakur@fakur.is
Leave A Comment
You must be logged in to post a comment.