Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin sunnudaginn 26. apríl næstkomandi í nýrri og glæsilegri reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Þar koma fram margir af efnilegustu hestamönnum landsins og sýna afrakstur vetrarstarfsins og er óhætt að segja að sýningin sé hápunktur vetrarstarfsins hjá hinum ungu knöpum.
Hópar ungra hestamanna frá öllum hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu; Fáki, Herði, Mána, Spretti, Sóta og Sörla sýna fjölbreytt atriði sem þeir hafa æft í hverju félagi fyrir sig. Börn úr hestamannafélögunum Geysi og Þyt munu einnig koma í heimsókn og sýna listir sínar.
Sigurbjörn Bárðarson, tamningameistari mun setja sýninguna en sýningarstjórn er í höndum Hilmars Guðmannssonar.
Sýningin hefst kl. 14:00.
Frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir.
Að sýningu lokinni verður í boði að fara á hestbak hjá Íshestum, en þar verður teymt undir börnum sem vilja prófa að fara á hestbak.