Námsskrá
Markmiðið er að efla áhuga á íþróttinni á breiðum grunni, kynna grunngildi hestamennsku og leyfa iðkendum að kynnast íþróttinni á fjölbreyttan hátt á sínum forsendum, sem og forsendum hestsins. Bæði er lögð áhersla á hestamennsku sem keppnisíþrótt og hestamennsku sem almenningsíþrótt í áherslum í kennsluskrá félagsins. Kynna skal hestinn (eðli hans og atferli) og hestamennsku fyrir knöpum á breiðum grunni á fjölbreyttan, jákvæðan hátt.
1.1 Pollar, börn, unglingar og ungmenni
Reiðskólar:
Í Fáki eru starfræktir tveir reiðskólar, Reiðskóli Reykjavíkur og Reiðskólinn Faxaból, sem bjóða upp á sumarnámskeið í hestamennsku fyrir polla og börn. Lögð er áhersla á að byggja upp traust og gott samband við hestinn og að iðkandi öðlist meira öryggi og þekkingu á hestamennskunni.
Hestaíþróttaklúbbur:
Í Fáki er starfræktur hestaíþróttaklúbburinn Fákar og fjör, þar sem boðið er upp á reiðkennslu á ársgrundvelli. Lögð er áhersla á fjölbreytt starf svo að allir geti fundið sig í hestamennskunni. Klúbburinn hentar bæði byrjendum og vönum hestakrökkum. Í gegnum hestaíþróttaklúbbinn er reynt að koma til móts við þá sem hafa áhuga á að stunda íþróttina en hafa ekki aðgang að hesti.
Knapamerki:
Frá 12 ára aldri er boðið upp á Knapamerki en markmið þeirra er að:
- Stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku á íslenskum hestum og hestaíþróttum.
- Auðvelda aðgengi að skipulagðri og merkvissri menntun í reiðmennsku og hestaíþróttum fyrir unga sem aldna.
- Bæta þekkingu á meðferð, notkun og umhirðu íslenska hestsins á breiðum grunni.
Með stigskiptu námi í hestamennsku er stuðlað að bættu aðgengi að fræðslu, þjálfun og menntun í hestamennsku. Markmiðið er að kennslan verði fagleg og samræmd þannig að nemandinn sé leiddur stig af stigi í takt við getu hans og áhuga. Þar með er lagður grunnur að árangri og öryggi í hestamennskunni hvort sem hún verður stunduð til frístunda eða sem keppnisíþrótt. Nám barna og ungmenna í hestamennsku er valkostur í skólakerfinu (metið til eininga í framhaldsskólum). Hinn almenni hestamaður getur með skipulögðum hætti aukið við þekkingu sína með því að sækja námskeið sem eru byggð upp stig af stigi hvað varðar námsþætti, færni og námsmat. (http://knapamerki.is/markmi)
Öll stig knapamerkja 1 – 5 eru kennd hjá hestamannafélaginu Fáki. Hverju stigi er lokið með bóklegu og verklegu prófi sem er undanfari næsta stigs.
Félagshesthús:
Iðkendur á aldrinum 10 til 18 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennskunni geta leigt sér niðurgreitt pláss fyrir sinn hest í félagshesthúsi Fáks. Leigjendur geta leitað til yfirþjálfara félagsins um leiðbeiningar og aðstoð.
Stök námskeið og einkatímar:
Boðið upp á stök námskeið, hópanámskeið og einkatíma fyrir þessa aldurshópa. Þar er markmiðið að gefa viðkomandi iðkanda tækifæri að byggja sig og hest sinn upp. Áhersla er bæði á keppnisþjálfun og almennar útreiðar.
1.2 Fullorðnir
Knapamerki:
Boðið er upp á knapamerki fyrir fullorðna. Sjá lýsingu hér að ofan
Stök námskeið og einkatímar:
Boðið er upp á stök námskeið, hópanámskeið og einkatíma fyrir þennan aldurshóp. Þar er markmiðið að gefa viðkomandi iðkanda tækifæri að byggja sig og hest sinn upp. Áhersla er bæði á keppnisþjálfun og almennar útreiðar