Þá er komið að T7 móti Fáks 2026 NýársT7 mótið mun fara fram laugardaginn næsta 31.janúar.
Flokkar sem verða í boði:
- Pollar teymdir
- Pollar ríðandi
- Börn minna vön
- Börn meira vön
- unglingar
- ungmenni
- 3. flokkur fullorðnir – fyrir fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í keppni
- 2. flokkur fullorðnir – minna keppnisvanir
- 1. flokkur fullorðnir – Keppnisvanir
Skráning verður uppí Reiðhöll frá 10:30 – 11:30 þar sem mótanefnd mun bjóða uppá vöfflur, heitt súkkulaði og kaffi. Mótið mun svo byrja 12:30 en ekki verður tekið við skráningum eftir kl 11:30.
Einnig er hægt að skrá sig í meðfylgjandi hlekk ef fólk kemst ekki á staðinn að skrá – >
Skráningarhlekkur