Fjármálastjórnun
Stefna félagsins:
- Stefna félagsins er að rekstur þess sé sjálfbær og hann standi fjárhagslega undir sér, til þess að hann geti stutt við uppbyggilegt og árangursríkt starf félagsins.
- Stefnt skal að hallalausum rekstri ár hvert, þ.e. að tekjur dugi fyrir öllum gjöldum félagsins.
- Félagið er rekið með styrkjum frá Reykjavíkurborg, félagsgjöldum, fjáröflunum ýmissa nefnda félagsins, útleigu fasteigna, öðrum styrkjum, auglýsingum o.s.frv.
- Ávallt skal staðið við gerða samninga og staðið í skilum með greiðslur. Allur rekstur félagsins skal vera sýnilegur og í samræmi við landslög.
- Gjaldkeri er ábyrgur fyrir fjármálum félagsins og eru allar greiðslur óheimilar án samþykkis hans.
- Formaður, gjaldkeri og framkvæmdastjóri hafa reglubundið eftirlit eftir fjármálum félagsins og bera raunstöðu fjárhagsbókhalds saman við áætlun þess til þess að fylgjast með þróun í fjárhagslegum rekstri þess og leggja fram rauntölur rekstrar samanborið við áætlun fyrir stjórn félagsins.
- Félagið færir bókhald sitt samkvæmt leiðbeiningum ÍSÍ um fjárreiður íþróttahreyfingarinnar (https://www.isi.is/library/Skrar/Efnisveita/Log-og-reglugerdir/leidbeiningar_um_fjarreidur.pdf) eftir því sem við á og samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.
- Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum og byggir í meginatriðum á kostnaðarverðsreglu með þeirri undantekningu að fasteignir og lóðir eru endurmetnar miðað við fasteignamat hverju sinni.
- Fjárhagsáætlanir skulu gerðar fyrir hvert rekstrarár. Leggja skal fjárhagsáætlun fram á aðalfundi félagsins til samþykktar. Nýta skal fjárhagsáætlanir til virks eftirlits með fjárhag félagsins.
- Að ekki sé stofnað til fjárskuldbindinga fyrir utan hefðbundinn rekstur félagsins nema heimild stjórnar liggi fyrir því.
- Eignir skulu ekki veðsettar nema fyrir því liggi samþykki félagsfundar.
- Haldið er sérstaklega utan um tekjur og kostnað af æskulýðsstarfi félagsins og námskeiðum sem sérstaklega eru ætluð pollum, börnum, unglingum og ungmennum.
- Fyllsta jafnréttis skal gætt við ákvörðun á launum, hvort sem um er að ræða þjálfara eða aðra starfsmenn félagsins.
- Í þeim tilvikum sem starfsmenn eru verktakar skal landslögum og skattalögum fylgt í hvívetna. Farið skal eftir leiðbeiningum Ríkisskattstjóra.
- Stjórn félagsins hefur stofnað afreks- og hvatningarsjóð sem hefur það að markmiði að styrkja afreksknapa félagsins í yngri flokkum til frekari afreka og veita styrki til hvatningar knapa í yngri flokkum um framþróun í hestaíþróttum. Sjóðurinn verður fjármagnaður með eftirfarandi hætti:
- Stofnframlag sjóðsins verður 10% af EBITDA hagnaði félagsins árið 2025.
- Stjórn félagsins hefur heimild til að leggja í sjóðinn 5% – 10% af EBITDA hagnaði félagsins, þau ár sem félagið er rekið með hagnaði.
- Sjóðinn er hægt að fjármagna með framlagi opinberra aðila, fyrirtækja eða einstaklinga.
- Einstaka nefndir innan félagsins geta ánafnað sjóðnum allt að 50% af hagnaði viðburða sem nefndirnar halda.
- Vaxtatekjur sjóðsins
Halda skal utan um fjármagn sjóðsins á sérstökum bankareikningi í nafni félagsins og skal sjóðurinn hirða þær vaxtatekjur sem inn á þann reikning reiknast. Gjaldkeri félagsins er ábyrgur fyrir vörslu og reikningshaldi sjóðsins.
- Rekstrarár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember ár hvert.
Samþykkt á stjórnarfundi 19. janúar 2026