Á komandi tímabili hafa fræðslunefndir hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að samræmast um sýnikennslur og fræðsluviðburði. Ákvörðunin var tekinn til að auka fjölda á hverjum viðburði fyrir sig og geta því jafnvel haldið stærri og flottari viðburði fyrir hestafólk á höfuðborgasvæðinu.
Síðustu ár hafa félögin verið að halda keimlík fræðsluerindi með fáum þáttakendum sem hafa jafnvel endað á því að standa ekki undir kostnaði.
Með þessum hætti geta félögin unnið saman, haldið stærri viðburði og hjálpast við að halda fræðsluna.
Næsta sýnikennsla verður haldin fimmtudaginn 21.nóvember í Lýsishöllinni í Fáki. Sigvaldi Guðmundsson mætir ásamt börnum sínum Helga og Elísubetu. Sýnikennslan verður auglýst nánar á næstu dögum
Við hvetjum alla til að mæta á viðburðina og auka þekkingu og færni hjá sér og sínum hestum. Hlökkum til að sjá sem flesta á þeim flottu fræðsluviðburðum sem verða í boði í vetur.
Fræðslunefndir hestamannafélagana á höfuðborgasvæðinu.