Eins og fram kom á heimasíðu Spretts var uppskeruhátíð barna og unglinga í Spretti og Fáki  haldin sameiginlega í veislusalnum í Samskipahöllinni. Fjöldi barna og unglinga ásamt foreldrum og öðrum góðum gestum mættu og áttu skemmtilega kvöldstund saman. Börn og unglingar úr báðum félögum sáu um að skreyta salinn fyrir hátíðina, ásamt því að ákveða dagskrá kvöldsins og leiki.

Jón Ó. Guðmundsson kokkur sá um matinn sem var stórgóður og færum við honum bestu þakkir fyrir. Anna ljósmyndari okkar Sprettara mætti að sjálfsögðu og tók fallegar myndi. Færum við henni bestu þakkir fyrir. Myndir frá uppskeruhátíðinni má sjá á facebook síðu hestamannafélagsins Spretts.

Þórdís Gylfadóttir fyrir hönd Spretts og Vilfríður Fannberg fyrir hönd Fáks buðu gesti velkomna. Dagskrá kvöldsins hófst á því að Elva Rún Jónsdóttir formaður Barna- og unglingaráðs Spretts sagði frá helstu viðburðum og hittingum á liðnu ári.

Efnt var til stórskemmtilegrar Kahoot spurningakeppni á milli borða þar sem spurningar á borð við Hver var knapi ársins 2024?, Hvor hleypur hraðar Usain Bolt 100m eða Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu 150m? Hvar verður Landsmót haldið árið 2028? Ungir Sprettara og Fáksarar nýttu einnig tækifærið og sögðu nokkra vel vanda brandara, eins og “Hvað sagði sólpallurinn við hinn sólpallinn? Ég vildi að við værum svalir.

Allir knapar sem tóku þátt á stórmóti, s.s. Landsmóti og/eða Íslandsmóti voru sérstaklega heiðraðir með viðurkenningaskjali og rós.

Þrír Íslandsmeistararar voru heiðraðir. Kristín Rut Jónsdóttir, Spretti, varð Íslandsmeistari í slaktaumatölti barna á Roða frá Margrétarhofi. Elva Rún Jónsdóttir, Spretti, varð tvöfaldur Íslandsmeistari í unglingaflokki. Í fjórgangi á Hraunari frá Vorsabæ II og í tölti á Straum frá Hofsstöðum, Garðabæ. Lilja Rún Sigurjónsdóttir, Fáki, varð tvöfaldur Íslandsmeistari í unglingaflokki. Á Heiðu frá Skák í gæðingaskeiði og einnig varð hún samanlagður sigurvegari í unglingaflokki á Íslandsmóti.

Þrír knapar voru heiðraðir fyrir þátttöku sína á Norðurlandamóti í hestaíþróttum fyrir Íslands hönd sem fram fór í Danmörku í ágúst sl. Það voru þau Ragnar Snær Viðarsson Fáki, Elva Rún Jónsdóttir Spretti og Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Spretti.

Þeir pollar sem tóku þátt á Íslandsmóti í pollaflokki voru sérstaklega heiðruð, sjá meðfylgjandi mynd af afar flottum og kátum pollum.

Stigahæstu knapar, bæði stúlkur og drengir, í barna- og unglingaflokki voru verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur. Streymisveitan Alendis útvegaði félögunum vídeó af stigahæstu knöpunum sem skapaði skemmtilega stemmningu. Færum við Alendis bestu þakkir fyrir.

Í barnaflokki í Fáki voru verðlaunuð fyrir framúskarandi árangur þau Helga Rún Sigurðardóttir og Alexander Þór Hjaltason

Helga Rún átti góðan árangur á stórmótum í ár. Á Íslandsmóti barna og unglinga keppti hún á hestinum Stein frá Runnum og varð í 4. sæti í Gæðingaflokki barna. Í forkeppni í úrtöku í sterkum barnaflokki á gæðingamóti Fáks keppti hún á hestunum Stein frá Runnum, Fannari frá Skíðbakka III og Hannesi frá Selfossi og tryggði sér 2,3 og 4 sæti í A-úrslitum. Í A- úrslitum varð hún svo í 4 sæti á hestinum Stein frá Runnum. Þar með gulltryggði hún sér miða á Landsmót þar sem hún keppti á Stein frá Runnum og var hársbreidd frá því að komast í B-úrslit. Hún varð í 16. sæti í gríðarlega sterkum barnaflokki. Á Reykjavíkumeistaramóti Fáks keppti hún í A-úrslitum í bæði tölti og fjórgangi á Fannari frá Skíðbakka III. Þá stóð hún sig mjög vel í Blue Lagoon deildinni.

Alexander Þór átti frábært mót á sterku Reykjavíkurmóti Fáks. Hann varð Reykjavíkurmeistari í tölti T4 á hestinum Jarli frá Gunnarsholti. Hann keppti einnig á hryssunni Sölku frá Mörk og varð Reykjavíkurmeistari í T7 og í 3. sæti í fjórgangi á þeirri hryssu. Í úrtöku fyrir Landsmót á gæðingamóti Fáks varð hann í 2. sæti í A-úrslitum á hryssunni Sölku frá Mörk eftir kraftmikla sýningu hjá þeim sem tryggði þeim farmiða á Landsmót þar sem hann komst í milliriðla. Þá sigraði hann Landsmótsleika Fáks og Spretts á Hörpu Dömu frá Gunnarsholti.

Í unglingaflokki voru verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur þau Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Ragnar Snær Viðarsson.

Lilja Rún átti góðu gengi að fagna á keppnisbrautinni í ár og hefur sýnt og sannað undanfarin ár að hún er bráðflinkur knapi og nær  frábærum árangri í fjölmörgum greinum hestaíþrótta. Í ár varð hún ttvöfaldur Íslandsmeistari í Gæðingaskeiði á hryssunni Heiðu frá Skák og samanlagður sigurvegari unglinga og einnig varð hún  í 2. sæti í slaktaumatölti á Arion frá Miklholti. Þá komst Lilja í B-úrslit á Landsmóti þar sem hún varð í 15. sæti á hryssunni Sigð frá Syðri-Gegnishólum.  Á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks varð hún í öðru sæti í 100 metra skeiði á Frekju frá Dýrfinnustöðum og 4. sæti í tölti á Sigð frá Syðri-Gegnishólum. Þá átti hún góðan árangur á öðrum mótum og varð meðal annars í 1. sæti í gæðingaskeiði í Meistaradeild Æskunnar. Lilja Rún var valin í úrtökuhóp U-21árs landsliðsins fyrir HM 2025.

Ragnar Snær átti gott keppnisár og uppskar 3 Reykjavíkurmeistara titla. Í fjórgangi á hestinum Ástarpung frá Staðarhúsum, hann sigraði svo bæði 100m og 150m skeið á hestinum Stráksa frá Stóra-Hofi. Hann keppti á hryssunni Sögu frá Kambi í úrtöku í Gæðingakeppni Fáks og varð þar í 2. sæti sem tryggði honum miða á Landsmót. Þá gerði hann það gott á öðrum stórum mótum og varð meðal annars 3. í 100m skeiði á Íslandsmóti. Ragnar Snær var valin í U-21 árs landslið Íslands sem keppti á Norðurlandamóti í Danmörku. Þar varð hann í 2. sæti í tölti og 4. sæti í fjórgang og annar í samanlögðum fjórgangsgreinum.

Innilega til hamingju knapar með frábæran árangur á árinu 2024.