Föstudaginn 10. april kl. 16:00-17.00 verður Hreiðar Haraldsson í veislusalnum í Lýsishöllinni með fyrirlestur um Afrekshugarfar – hvað einkennir hugarfar frammúrskarandi einstaklinga.
Hreiðar mun ræða um markmiðasetningu og fókus til að bæta framfarir og skuldbindingu við íþróttina í daglegu lífi.
Fyrirlesturinn er fyrir unga fáksara – börn, unglinga og ungmenni. Foreldrar eru hvattir til að mæta með. Þeir sem hafa áhuga á að mæta skrá sig í linknum hér að neðan.