Keppnistímabilið er í þann mund að hefjast af fullum krafti með vetrarleikum og innahússmótum. Nú er einnig landsmótsár því er mikilvægt að hnykkja á þeim reglum sem gilda í keppni og mikilvægum atriðum sem snúa að keppnisparinu. Því var ákveðið að stofna til Keppnishóps Fáks. Hópurinn er ætlaður fyrir börn, unglinga og ungmenni sem stefna á keppni hvort sem það er í íþróttakeppni eða gæðingakeppni.
Haldin verður fyrirlestraröð fyrir hópinn ásamt hópefli til að hrista hópinn saman og hafa gaman saman. Hvetjum alla – börn, unglinga og ungmenni – til að skrá sig og undirbúa sig fyrir keppnirnar sem framundan eru. Foreldrar eru velkomnir með börnum.

Ath að það þarf að skrá sig í hópinn, skráning fer fram á sportabler og kostar ekki neitt. https://www.abler.io/shop/hffakur…

1) Föstudaginn 27. febrúar kl.17:15 -18:15 í veislusalnum í Lýsishöllinni Halldór Gunnar Victorsson íþróttadómari – Hvað eru íþróttadómarar að hugsa? Halldór fer yfir lög og reglur, dómsskalan, hvað eru góðar sýninga, hvað telst til hækkunar á sýningu og allt sem viðkemur keppni í íþróttakeppni.
2) Föstudaginn 27. Mars kl. 16:00-17.00. Hreiðar Haraldsson í veislusalnum í Lýsishöllinni. Afrekshugarfar – hvað einkennir hugarfar frammúrskarandi einstaklinga. Hreiðar mun ræða um markmiðasetningu og fókus til að bæta framfarir og skuldbindingu við íþróttina í daglegu lífi.
3) Mánudaginn 11. maí (tímasetning auglýst betur síðar) í veislusalnum í Lýsishöllinni.
Fyrirlestur með gæðingadómaranum Sigríði Pétursdóttur fyrir þá sem stefna á úrtöku fyrir Landsmót. Gæðingakeppni – hvað þarf til að ná árangri?
Úrtaka fyrir Landsmót byrjar 22. maí og Reykjavíkurmeistaramót byrjar 1. júní